Önnur störf

2018- í dag

Meðlimur í Björgunarsveit Landeyja

Ég er í björgunarsveit til að geta hjálpað fólki og samfélaginu þegar á reynir. Mér finnst mikilvægt að standa við ábyrgðina sem fylgir og læra nýja færni, auk þess sem samstarfið við aðra í sveitinni styrkir vináttu og liðsheild.

2016- í dag

Trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi

Ég starfa sem gjaldkeri kjördæmisráðs og ber ábyrgð á fjármálastjórn og rekstri ráðsins. Í starfinu tek ég þátt í því að fara með sameiginleg flokksmál í kjördæminu í umboði miðstjórnar, ásamt því að koma að ákvörðun framboðslista flokksins við Alþingiskosningar. Jafnframt tek ég þátt í skipulagi og framkvæmd kosningabaráttu framboðslistans innan kjördæmisins.
Er einnig varaformaður fulltrúaráðsins í Rangárvallasýslu.

2018-2023

Sæti í stjórn Sjálfstæðisfélagsins Kára, Hvolsvelli

Ég fékk einstakt tækifæri til að sitja í stjórn Sjálfstæðisfélagsins Kára á Hvolsvelli. Þetta var tækifæri til að taka virkan þátt í stefnumótun innan sveitarfélagsins og leggja mitt af mörkum til að byggja upp sterkt samfélag í Rangárþingi eystra byggt á frjálslyndum gildum.
Sjálfstæðisfélagið Kári hefur í gegnum árin verið mikilvægur þáttur í stjórnmálaumræðu í Rangárþingi eystra. Félagið hefur unnið að því að tengja íbúa sveitarfélagsins við stefnu Sjálfstæðisflokksins og veita kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn raunverulegt aðhald. Að sitja í stjórn Kára var ekki bara heiður – það var raunveruleg ábyrgð gagnvart félagsmönnum og gagnvart hagsmunum íbúa sveitarfélagsins.
Í stjórnarsetu minni vann ég með félögum mínum að því að koma D-listanum í meirihluta í sveitarstjórn. Við náðum þessu takmarki 2018 og hefur listinn verið í meirihluta síðan.

2018-2022

Sveitarstjórnarfulltrúi í Rangárþingi eystra

Ég hef fengið einstakt tækifæri til að taka þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku í sveitarfélaginu með því að beita fjármálalegri þekkingu minni til að byggja upp sterkara samfélag. Ég legg áherslu á að taka vel ígrundaðar ákvarðanir sem tryggja fjármálalegt jafnvægi og fjárhagslega ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins.

2018-2022

Formaður velferðarnefndar Rangárþings eystra

Ég hef lagt áherslu á að skapa fjárhagslegan grunn fyrir velferðarþjónustu sveitarfélagsins, bæta úthlutun fjármuna og tryggja að allar fjárfestingar í félagslegum úrræðum séu í takt við framtíðarsýn sveitarfélagsins.

2018-2020

Formaður byggðarráðs Rangárþings eystra

Að leiða byggðarráð er krefjandi og gefandi verkefni. Ég vann þar að stefnumótun sem tryggir sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins, greiningu á fjármálum sveitarfélagsins með tilliti til langtímaskuldbindinga og tók þátt í fjárhagsáætlanagerð með það að markmiði að hámarka þjónustu við íbúa með sem bestri nýtingu fjármuna.

1993-1995

Sæti í stjórn félags tæknifólks í rafiðnaði

Ég tók þátt í stofnun Félags tæknifólks í rafiðnaði 1993, á þeim tíma þegar aukin þekking, reynsla og ekki síst sérnám erlendis fóru að verða meira áberandi í starfsumsóknum, meðal annars í fjölmiðlum, leikhúsum og öðrum tæknigreinum. Félagið hafði strax frá upphafi mikilvægu hlutverki að gegna bæði í réttindabaráttu félagsmanna og á faglegu sviði. Árið 1995 varð félagið fullgilt stéttarfélag innan Rafiðnaðarsambands Íslands, sem styrkti stöðu þess og gaf því aukin áhrif innan rafiðnaðargeirans.

1989-1991

Sæti í stjórn Mágusar - Félag viðskiptafræðinema og stjórn NESU Iceland

Ég sat stjórn Mágusar sem tengiliður við NESU. Tilgangur Mágusar er að vinna að félagslegum og hagsmunalegum málefnum viðskiptafræðinema og vera málgagn þeirra innan skólans og utan. Félagið á einnig að stuðla að betri umræðu um viðskiptafræði, viðhalda sambandi við hagsmunafélög viðskipta- og hagfræðinga og hvetja til útgáfu á því sviði. Starfsemi NESU snýst um að leyfa þátttakendum að kynnast öðrum viðskipta- og hagfræðinemum ásamt því að fræðast um hin Norðurlöndin, menningu þeirra og fyrirtæki. NESU nær þessu takmarki með því að halda ráðstefnur, fyrirlestraraðir, skemmtanir og ‘sitsfest’.

1984-1986

Sæti í stjórn Heimdalls, Félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík

Heimdallur var stofnaður árið 1927 og er elsta svæðisfélag íslensks stjórnmálaflokks. Félagið hefur í gegnum árin verið vaxtarbroddur Sjálfstæðisflokksins og þekkt fyrir að taka upp nýstárleg mál sem síðar hafa orðið að stefnu flokksins. Að sitja í stjórn Heimdallar var upphafið af því að móta mínar pólitísku skoðanir.

© Allur réttur áskilin.  29 jan, 2026 | Vefsmíði Elín Fríða Sigurðardóttir | ✉ elin@elinfrida.is  |  ☏ 845-8891  |  Gunnarsholti, 851 Hellu