Elín Fríða Sigurðardóttir
„Bestu minningarnar eru í framtíðinni“ – Erró
ATVINNA
Störf og hlutverk síðustu ára
MENNTUN OG NÁMSKEIÐ
Gráður og viðurkenningar
ÖNNUR STÖRF
Nefndar- og sveitastjórnarstörf
LÍFSINS VEGUR
Stiklað á stóru gegnum árin
Við höfum búið saman í meira en 30 ár, ferðast um heiminn, upplifað lífið saman og notið hvers einasta augnabliks sem lífið gefur. Hún bjargaði lífi mínu þegar ég fékk hjartaáfall – eins og hún hefði alltaf verið verndari minn. Hún er yfirveguð, hlý og hjálpsöm, með hjarta sem nær alltaf að finna leið inn í tilfinningar annarra. Hún er lífsförunautur minn og sú sem gerir hvert eitt augnablik fallegra en það síðasta.
Þó að ég og Elín Fríða höfum þekkst um áratugaskeið, þá var það ekki fyrr en á síðustu árum sem við fórum að eiga samskipti í tengslum við störf okkar. Það hefur verið afar ánægjulegt að kynnast henni á þeim vettvangi líka og sjá hversu rösk hún er og fljót að tileinka sér nýja hluti.
Elín Fríða kom mér skemmtilega á óvart með útsjónarsemi og framsýni varðandi ýmsa ferla og lausnir sem nýtast stofnuninni hennar vel. Maður kemur aldrei að tómum kofanum hjá Elínu Fríðu – hún er fróð, lausnamiðuð og vel inni í öllum málum.
Ég hef starfað með Elínu Fríðu í stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi síðan í október 2022 þegar ég tók þar við sem formaður. Kannaðist aðeins við hana fyrir þann tíma og vissi að hún hafði verið öflug í félagsmálum á sínu svæði og af henni fór mjög gott orð.Hún tók gjaldkeraembættið í stjórn strax föstum tökum og kom mun betra skipulagi á fjármál kjördæmisráðs, stýrði fjáröflunum, innheimti félagsgjöld, greiddi alla reikninga og sá um að gera ársreikning ráðsins.Það var mikill fengur fyrir okkur að hafa svona vana fjármálamanneskju í embætti gjaldkera og augljóst mál að þar er hún á heimavelli, með sýna þekkingu og auga fyrir tæknilausnum.Við unnum náið saman þegar kom að því að undirbúa aðalfundi og aðra stóra viðburði ráðsins og þar bar aldrei skugga á. Elín Fríða er afskaplega þægileg í samskiptum með sína léttu lund og jákvæðni, alltaf vel undirbúin og fljót að koma sér inn í öll mál.
Ég kynntist Elínu Fríðu þegar við unnum saman í SS Austurveri 1983-1984. Ég man að ég leit upp til hennar því mér fannst hún strax bæði klár og skemmtileg. Leiðir okkar lágu svo saman aftur haustið 2022 þegar ég var nýtekin við sem sviðsstjóri reksturs hjá MAST. Það er skemmst frá að segja að Elín Fríða reyndist mér mikill stuðningur með alla þá reynslu og þekkingu sem hún hefur af fjármálum og rekstri. Ég hef alltaf getað leitað til hennar og hefur hún verið boðin og búin að aðstoða og leiðbeina. Ekki má gleyma þegar hún bauð mér að gista hjá þeim hjónum í Gunnarsholti þegar ég þurfti á því að halda að komast í annað umhverfi. Elín Fríða hefur reynst mér einstaklega vel sem bæði sem kollegi og sem vinkona.
Um Mig
Ég er fædd 11. janúar 1966, í Reykjavík, þar sem ég ólst upp. Foreldar mínir eru Sigurður Hallvarðsson og Málhildur Þóra Angantýsdóttir sem eru bæði látin. Ég er gift Davíð Þór Óskarssyni fæddur í Skipagerði, V-Landeyjum 4. september 1967 og höfum við búið saman í rúm 34 ár. Við eigum þrjú börn og 7 barnabörn.
1) Hildur Þóra (faðir Þorvaldur Birgisson), f. 23. mars 1986, gift Geir Sigurðssyni Waage og eiga þau þrjú börn, Söru Jóhönnu (móðir Emilía Maí Gunnarsdóttir), Elínu Fríðu og Sigurð Ingvar,
2) Óskar Þór (móðir Þorbjörg Pálsdóttir), f. 30. nóvember 1987, giftur Hafdísi Guðrúnu Benidiktsdóttur og eiga þau fjögur börn, Gabríel Snæ, Díönu Lóu, Sigrúnu Björk og Karen Lind.
3) Sigurjón Þór, f. 1. október 1995, unnusta hans er Katrín Ósk Jónsdóttir.
