Menntun

Prófgráður

2023-2024

Háskóli Íslands

Viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu

Námið gaf mér dýpri sýn á fjármál hins opinbera og þau eftirlitskerfi sem gilda um fjármál, stjórnskipulag, stjórnarhætti og stjórnsýslu

1986-1993

Háskóli Íslands

Viðskiptafr. af endurskoðunarsviði - Cand. Oecon.

Námið veitti mér trausta þekkingu á sviði reikningsskila og endurskoðunar.

1982-1986

Verslunarskóli Íslands

Verslunar- og stúdentspróf

Í þessu námi lagði ég grunn að fjárhagslegri hugsun minni og áhuga á viðskiptum og rekstri.

Námskeið

2025

Europa Media Trainings

2 daga námsskeið í Budapest

Þjálfun í útreikningi kostnaðar og skýrslugerð í Evrópustyrkja verkefnum. Lærði hvernig á að reikna út og skrá launakostnað í evrópu verkefnum. Þetta er hagnýtt námskeið ætlað þeim sem vinna með eða stýra verkefnum sem njóta fjármögnunar frá Evrópusambandinu. Farið var yfir kröfur Grant Agreement, útreikninga á gjaldgengum launakostnaði, rétta skráningu og helstu atriði sem snúa að reglum og endurskoðun (audit). Markmiðið var að þátttakendur öðlist skýran skilning á framkvæmd reglnanna og geti farið rétt og örugglega með launakostnað í evrópu verkefnum.

2020-2025

WordPress

Vefnámsskeið

Fyrsta námskeiðið sem ég tók var Beginner Word Press User árið 2020, síðan þá hefur forvitni mín leitt mig á allskyns slóðir á netinu þar sem ég hef bætt við þekkingu og reynslu mína.
Fyrst lærði ég að hanna og setja upp WordPress vefsíður fyrir ólíkar þarfir, þar á meðal ferilskrár og fyrirtækjasíður. Ég hef með tímanum, tileinkað mér færni í að vinna með WordPress, búa til og hanna ýmsar lausnir, t.d. fjarmal.landogskogur.is.

2022

ArcGIS Online Fundamentals

Vefnámsskeið

Á þessu námskeið lærði ég að vinna með ArcGIS Online og nýta möguleika þess til að búa til og deila kortum. Ég tileinkaði mér grunnþekkingu í ArcGIS Online, þar á meðal hvernig eigi að birta landfræðileg gögn, búa til og stilla vefkort með þeim gögnum sem ég skoða.
Námskeiðið kenndi mér einnig hvernig eigi að nálgast kort og landupplýsingar sem vistuð eru á ArcGIS Online og hvernig megi nýta þessi verkfæri til að auka skilvirkni og samvinnu innan stofnunar. Með þátttöku í námskeiðinu byggði ég upp færni til að nýta landupplýsingakerfi og betri skilning á því að allt gerist í tíma og rúm, hver séu tengsl slíkra vídda og hvað þau tengsl hafa með hnitsetningar að gera.

2018-2024

Microsoft lausnir

Vefnámsskeið

Í gegnum árin hef ég sótt fjölda námskeiða og fyrirlestra hjá þeim stofnunum og fyrirtækjum sem ég hef starfað hjá, meðal annars í Dynamics NAV (Navision), Excel, Power BI, SharePoint og öðrum lausnum frá Microsoft. Kynningar og fjöldi stuttra námskeiða vöktu og vekja enn áhuga minn á hugbúnaði og þeim leiðum sem hann býður upp á til að auðvelda vinnu og auka afköst.
Áhugi minn á nýjungum er mér hugleikinn og ég fylgist vel með þeim breytingum sem tíminn leiðir fram. Ég er fljót að tileinka mér nýja starfshætti og venjur og hef byggt upp yfirgripsmikla þekkingu með sjálfsnámi, sem hefur gert mér kleift að innleiða nýja tækni og ferla með nýtingu kerfanna hjá Microsoft svo bæta megi skilvirkni og afköst.

Endurmenntun

2024 - 4 klst

Endurmenntun HÍ

Viðbrögð stjórnenda við tilkynningu um EKKO á vinnustað

2024 - 3,5 klst

Endurmenntun HÍ

Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli

2024 - 3 klst

Starfsmennt

Innkaupaskólinn - Sjálfbær innkaup

2023 - 6 klst

Starfsmennt

Innkaupaskólinn - Grunnnámskeið í opinberum innkaupum

2023 - 1 klst

Starfsmennt Akra

Gerð rekstraráætlana - launahluti

2022 - 8 klst

Endurmenntun HÍ

Microsoft Power BI

2022 - 1 klst

Starfsmennt Akra

Gerð rekstraráætlana – launahluti

2022 - 1 klst

Starfsmennt Akra

Rekstraráætlanir ríkisaðila – Viðfangalíkanið

2021 - 4 klst

Endurmenntun HÍ

Erfið starfsmannamál

2014 - 2 klst

Endurmenntun HÍ

Geðræn vandamál aldraðra

2014 - 2 klst

Endurmenntun HÍ

Geðrofssjúkdómar

2013 - 2 klst

Endurmenntun HÍ

Áfallastreituröskun

1996 - 3 klst

Endurmenntun HÍ

Nýjar kröfur um framsetningu ársreikninga og upplýsingaskyldu í þeim.

1996 - 15 klst

Endurmenntun HÍ

Hagnýt lögfræði fyrir starfsfólk fjármálafyritækja

© Allur réttur áskilin.  1 feb, 2026 | Vefsmíði Elín Fríða Sigurðardóttir | ✉ elin@elinfrida.is  |  ☏ 845-8891  |  Gunnarsholti, 851 Hellu